Ađalvalmynd

Könnun

Á ađ skella sér í útilegu í sumar?

Auglýsing

stillingar :P

25. október 2007 klukkan 20:05

Jæja það er kannski kominn tími á að sýna að þessi síða sé á einhverri hreyfingu.... Sit hérna á Prikinu, líkt og venjulega með fartölvu og er að reyna að leysa heimsvandamálin, en það gengur eitthvað erfiðlega, ein hugmynd sem ég er kominn með er að flytja alla íslendinga upp á Jótlandsheiðar,ég held að það mundi leysa Íraksstríðið léttilega og koma frið á milli Frakklands og Íran.

Svo var ég líka að spá ef við mundum setja upp svona á ströndinni stór hitaunit, þá mundi vindurinn sem við fáum á okkur vera volgur, ekki jafn ískaldur og hann er alltaf, það mundi held ég fjölga kameldýrum í Ísrael.
En þetta er bara svona smá útúrsnúningur núna að alvöru heimsmálum, ég hef ekki enn þá fundi Dolce&Gabbana snjógallann í verslunum hér á landi, sem er ekki alveg nógu gott... Mér er farið að verða frekar kalt sko, og það vita allir að manni hitnar best af gull D&G snjógalla :P
En annars er fátt í fréttum héðan úr borg óttans, miðbærinn er orðinn fullur af fullvopnuðum víkingarsveitarmönnum, middel east what...?!?
Ég hef reyndar ekki farið niður í miðbæ síðan að þeir fóru að mæta þarna, það er eiginlega ein ástæði fyrir því, það eru engin almenningsklósett! Og ef ég ef ætla að létta af mér vatni þá er maður handtekinn. Ég er ekki alveg að þora því, frekar smeykur við það satt að segja.
GLEÐIFRÉTTIR: ég fann hvar hægt er að kaupa uppáhalds sinnepið mitt! Það er greinlega bara hægt að fá það í Nóatúni. Ég ætla ekki að segja ykkur hvað það heitir, enda vil ég ekki að það verði uppselt.

Friður
Stjáni

Afmćlispartý...

16. október 2007 klukkan 19:27

Jæja þá er að því að halda tvítugs afmælisteiti, og verður það haldið Laugardaginn 20. októrber og hefst teitið á slaginu 20:00
Þar sem alvöru teiti hafa öll almennilegt þema, hefur verið ákveðið að hafa þemað: Harlem Ghettó áttundi áratugurinn... Eitthvað líkt og þessi... ;)
dada

Þar sem Stjáni hefur ekki endalaust af peningum verður þetta svona bring your own shit :P
Veislan verður haldin í Kapellustígur 1 íbúð 202 og einnig 102, en mætiði fyrst upp til að hitta afmælisbarnið....
Ef það eru einhverjar spurningar hringið í mig ;)
S: 8451908

Stjáni Kveður

Hrađakstur

01. ágúst 2007 klukkan 13:19
Elsku krakkar mínir...
Vinsamlegast hafið þessa auglýsingu í huga þegar þið eruð að keyra of hratt...

http://www.mojoflix.com/Video/You-May-Never-Speed-Again-After-Seeing-This.html

Friður
Stjáni

Verslunarmannarhelgin 2007

31. júlí 2007 klukkan 17:39
Kæru landar! Nú er vág fyrir höndum, hingað streymir brjálað fólk!
Hvað kom fyrir Reykjavík, allt að verða vitlaust.
En núna verðum við að passa okkur alveg rosalega fyrir verslunarmannahelgina þanning að við þurfum ekki að horfa á eftir vinum og ástvinum. Við þurfum að haga okkur skikkanlega.
En jæja ég ætla að minnsta kosti að skella mér norður um verlsunarmannahelgina og mála Akureyri algjörlega eldrauða! Ég kem í bæinn á föstudeginum og fer á þriðjudagskveldi... Ef það er einhver með far fyrir mig tilbaka þá væri það alveg vel þegið, en þetta reddast allt...
En svona annað sem er frétthæft er að Kristján Geymslubúi er fluttur út.

en ég fann þetta á netinu frekar sniðugt

K : You're wild and crazy.
R : Fuckin crazy.
I : Great in bed.
S : Easy to fall in love with.
T : You're loyal to those you love.
J : People Adore you
A : You like to drink.
N : You like to drink. 

A : You like to drink.
E : Great in bed.
G : You never let people tell you what to do.
I : Great in bed.
R : Fuckin crazy.

En svona geriru þetta:
A : You like to drink.
B : You like people.
C : You are really silly.
D : One in a million.
E : Great in bed.
F : You are dead sexy.
G : You never let people tell you what to do.
H : You are Quirky.
I : Great in bed.
J : People Adore you
K : You're wild and crazy.
L : Unbelievably great in bed.
M : Best kisser ever.
N : You like to drink.
O : Awesome kisser.
P : You are popular with all types of people.
Q : You are a hypocrite.
R : Fuckin crazy.
S : Easy to fall in love with.
T : You're loyal to those you love.
U : You really like to chill.
V : You are not judgemental.
W : You are very broad minded.
X : You never let people tell you what to do.
Y : Best boy/girlfriend any one can ask for.
Z : Always ready.

Friður!
Stjáni

ráđaleysi

18. júlí 2007 klukkan 00:41
Ráðaleysi..
Humm what to do... einhvern veginn þá veit ég ekkert hvað ég á að gera, á ég að hanga hérna á klakanum í tvö ár í viðbót, eða á ég að koma mér á sjóinn og vinna mér inn pening fyrir Ástralíu ferð?
Segjum sem svo að ég klári skólann hérna, þá þarf ég að vinna á stofun í einhvern x mikinn tíma, man ekki alveg hvað ég er búinn með margar einingar og svo á ég eftir 4 annir, þá klára ég stúdent af starfs- og listnámsbraut og get svo farið út í eitthvað design nám, eða bara farið að vinna...
En ef ég fer út þa get ég sem dæmi valið milli þessara hluta:
  • Senior Hair Designer
  • Salon Owner
  • Salon Manager
  • Educator
  • Colour Technician
  • Freelance Television Artist
  • Fashion Stylist
  • Platform Artist
  • Cruise Ship Day Spa Manager
  • Catwalk Hairstylist
  • Photographic Hairstylist
  • Competition Trainer

Og svo tek ég bachelor gráðu í háskóla þarna út, býst við að allur heildarpakkinn mundi vera 3-4 ár, aftur á móti er það niður í Ástralíu, en þá mundi ég eflaust ekki fara í eitthvað framhaldsnám...

What to do, what to do?

En annars er frekar lítið að frétta, lífið gengur sinn vanagang.. Alltaf jafnfallegt, fyrir utan að ferðalangurinn inn i mér er farinn að kalla frekar hátt og mér er farið að langa að svara kallinu hans...

Friður
Stjáni

Sumir sitja sem lengst og láta sig dreyma, en ađrir fara og láta draumana rćtast.

17. júlí 2007 klukkan 03:11
Vinkona mín hún Sunneva sagði mér frá skemmtilegri bók sem hún hafði lesið, sem snerist um mann sem fékk leið á lífi sínu og ákvað segja já við öllu, sem sagt ef einhver sagði hey viltu koma til Ástralíu þá sagði hann já og fór.. Ég hef ákveðið að kynna mér þetta betur og prófa þetta innan vissra marka..
Til að stökkva svona einu úr annað, þá var helgin alveg frábær í alla staða, takk fyrir helgina Toni, Siggi, Rut og Sunneva, Austurvöllur var frábær, veðrið var alveg brilliant, held að maður sé orðinn brúnni heldur en litli afríkubúinn sko... Grillmatur var algjört lostæti strákar, þyrftum að gera þetta helst einu sinni í viku ;) Sunneva þú brilleraðir með þessum skemmtilega söng í leigubílnum... Takk krakkar! Get ekki beðið eftir næstu helgi sko...
En svona nóg um það í bili..

Sá leiðtogi, sem hikar ekki við að etja þjóð sinni út í stríð, er óhæfur leiðtogi


Þessi orð eru alveg frábær, alltaf þegar ég hitti Sigga, þá einhverra hluta vega færast umræðurnar í heimsmálapólítíkana, og einhvern veginn enda þær alltaf á því hvað Bush er mikill kewlströget.. Ég held að maður þurf nú ekkert að útskýra þessi orð eitthvað frekar...

Annars er frekar fátt úr fréttum úr höfuðborginni, það er nú frekar lítið að gera í vinnunni, sólinn er búinn að vera hérna alveg rosalega mikið og ég þakka nú guði fyrir það  (enda bað ég hann um hana ;P)  Austurvöllur er orðið nýja lögheimilið mitt, pósturinn er farinn að koma þangað, ég er nú samt ekki orðinn róni bara dagdrykkjualkahólisti ;)

En já meðan ég man þá er ég kominn í frægan hóp myspacara og mun slóðin mín vera www.myspace.com/saudurinn þar er hægt að finna nokkrar gamlar og góðar myndir af kappanum..

Svo er allt á fullu að reyna að skipuleggja flutning til Ástralíu og gengur það alveg frekar vel, ef einhver þekkir íslendinga sem búa úti endilega láta mig vita... ég er alveg frekar týndur í því að reyna að fá vegabréfsáritun..

En Meira verður það ekki að sinni
Friður
Stjáni

Tilgangslaust blogg

13. júlí 2007 klukkan 02:28
Nú bara annað bloggið í röð! Hvað ætli sé eiginlega í gangi?
Núna hef ég kannski frá einhverju að segja... (jey í fyrsta skipti stjáni)Sko málið er það að ég komst inn í skóla erlendis, hann heitir pivot point international academy og er staddur í Melborne og það mun vera í Ástralíu... Þannig að hann Stjáni hérna mun leggja land undir fór í Janúar á næsta ári og flytjast búflutning til Ástralíu og kemur ekkert aftur næstu árin, sry fólk þið verið bara að komá í heimsókn til mín... En núna er maður að reyna að vinna eitthvað af viti til að eiga fyrir þessu, þetta er nú ekki alveg það ódýrasta skal ég ykkur segja... Síðan er allt vesenið í kringum þetta, það er nú ekki lítið... Það er nú ekki alveg hlaupið af því að fá visa inn í Ástralíu, það getur tekið í kringum hálft ár... Svo  þarf maður að finna sér einhverja vinnu...
En þetta verður ekkert mál... Þetta reddast allt...
Þessi orð eru búinn að vera notuð talsvert mikið seinustu daga, enda þýðir ekkert að vera að stressa sig á þessu, þetta mun allt koma til með að reddast...
En dagurinn í dag var tekinn frekar rólega, það er sko frekar lítið að gera þessa daga í vinnu (sem sagt ekkert að gera) þannig að maður er búinn að hætta frekar snemma nú þessa vikuna og taka sér smá "sumarfrí" og það er búið að vera sweet, Austurvöllur er búinn að vera notaður í tætlur og sólin er búinn að senda alla geislana sína til mín ;) Þannig að maður er kominn með smá brúnku...
Svo er annars lítið að frétta úr borginni það er bara alltaf jafn yndislegt, sólinn er búinn að vera dugleg að láta sjá sig og allt í gúddí, svo hef ég ákveðið að skella sér norður og njóta verslunarmannarhelgarinnar með fjölskyldunni og hver veit nema að maður ákveði að skella sér á djammið, ég ætlaði að fara í eyjar, en þar sem maður er að fara að flytja út þá hætti ég við, sry krakkar kostar einfaldlega of mikið fyrir mig núna...
En núna er klukkan orðin of margt og ég þarf að fara að sofa!

Friður
Stjáni

Sannir vinir skilja eftir sig stór fótspor í hjartanu

11. júlí 2007 klukkan 02:25
Í tilefni af því að netið er komið heim til mín, eftir hálfs árs internet leysi hef ég ákveðið að byrja að blogga aftur, kannski enginn tilgangur, held að það séu allir hættir að lesa þetta blogg fyrir löngu. En það er nú ekkert rosalega margt að frétta af mér en það helsta er sem dæmi að ég er kominn með nýju ég er núna að vinna á Grand Hótel Reykjavík (stóri turninn á móti hótel nordica) þar sem ég starfa í ráðstefnu- og tæknideild, ég er nú samt ekkert hættur í hárgreiðslunni, já nei ákvað að fara að vinna aðeins á betri launum, það er nú alveg hægt að segja að nema kaupið í hárgreiðslunni eru nú engin bankastjóralaun.
Svo er ég kominn með íbúa í geymsluna, hann Kristján Aage býr þar núna meðan hann er að finna sér aðra íbúð. Það er alveg ágætt, samt frekar skrýtið að koma heim og það er einhver þar, frekar skrýtið eftir að hafa verið eiginlega einn í hálft ár, en þetta venst allt og vonum að þetta verði bara skemmtilegt. °
Svo er meistarinn hann Kristján Ægir búinn að týna húslyklunum mínum, skil ekki alveg hvernig mér tókst það, það er að segja vegna þess að lyklakippan er ekkert lítil hún er svo frekar stór skjaldbaka og svo er hann Svampur nokkur Sveinsson þarna líka, ef einhver hefur séð hana þá endilega látiði mig vita.
Svo kom gamla settið í heimsókn og var hérna í nokkrar nætur áður en þau fóru til Spánar, það var alveg rosalega gaman, en þegar litli skæruliðinn hún Birta María Vilhjálmsdóttir var búinn að hlaupa hringinn í kringum litlu íbúðina hraðar heldur 2005 árgerð af BMW og rusla alveg öllu til, var íbúðin eins og eftir vikupartý.
Veðrið hérna í borginni hefur verið alveg rosalegt seinustu daga, held að orð fái því ekki lýst, og svo þegar mesta stressið er búið í vinnunni þá er að fara koma rigning, alveg er þetta týpískt.  

Lífið er það sem gerist á meðan þú ert upptekinn við annað.
John Lennon

Þegar maður hefur íhugað þessi orð lengi, þá fara þau að meika meira sense því meira sem maður íhugar þau. 
 

Gott fólk er gott vegna þess að það lærði af sárri reynslu
                                              
William Saroyan

Hérna er ég aftur á móti ekki alveg sammála, tökum sem dæmi ungt barn sem vill alltaf að deila með sér og strjúka og klappa, þegar barnið er að gera þessa hluti þá er það gott innan vissara marka, en er þá einhver sár reynsla á baki? Hver mundi sú sára reynsla vera? 

 En þá látum við þetta gott heita í bili...Friður Stjáni  

P.S Að láta sjálfum sér leiðast er glæpsamleg leið til að eyða lífinu.

Smá blogging

11. mars 2007 klukkan 21:56

5. mars

 

Jæja þá er enn önnur helgin að lokum kominn. En hvað er samt málið með Sunnudaga, einhvern vegin þá hugsar maður alltaf svo rosalega mikið á sunnudögum, og það er svolítið sem mér líkar bara alls ekki. Rifja upp einhverja gamla tíma sem maður geymir alveg innst inni og er kannski eitthað sem maður einn veit um. Og svo á einhverjum köldum sunnudögum eins og þessum fer maður að spá í hlutunum. Af hverjum fæddist maðurinn sem þenkjandi vera, af hverju er maðurinn ekki með 3 sekúnda minni eins og gullfiskur, ég meina það væri alltaf gaman að fara út að labba og sjá eitthvað nýtt í hvert einasta skipti, maður væri alltaf að kynnast nýju fólki og hafa gaman.

En nei við fæddust með minni og það langt minni, sama hversu mikið manni langar að leyma þessum hlutum þá getur maður það ekki. Og svo kemur af einhverju hlutum sem manni langar alls ekki að gleyma, einhvern veginn falla þeir alltaf í gleymsku fyrst.

En jæja svona er þetta. Helgin var fín bara, kíkti aðeins út á föstudaginn en var kominn heim fyrir kl 4 fór nefnilega að vinna kl 10 á Supernova var að vinna til tvö síðan skellti ég með múttu og co í búðir, og þar var hitt og þetta verslað... En héðan er samt frekar lítið að frétta, dagurinn í dag er búinn að vera rosalega rólegur..

En það hefur samt verið rosalega skrýtið að vera að versla sér dót í íbúðina mína, ohhh get ekki beðið eftir að fá hana afhenda og fara að setja upp dótið í hana. Og svo verður Svala í íbúðinni á móti, þannig það verður ekki langt að fara að skella sér í kaffi..

 

 

6. Mars

 

Hafið þið einhvern tíman pælt í því hversu mikil áhrif maður hefur á líf fólks, kannski er það eitthvað sem maður segir, eitthvað sem maður gerir eða jafn  vel bara hvernig maður horfir á manneskjuna... Hvernig væri til dæmis líf mitt hefði ég ekki kynnst einhverri manneskju, væri ég staddur á Akureyri eða væri ég kannski einhvers staðar allt annars staðar. Væri ég sem dæmi að læra hárgreiðslu hefði ég ekki flutt út eða hefði svona gott fólk í kringum mig til að styðja mig. Ég hef verið að pæla í þessu talsvert seinustu daga, það er að segja hvaða áhrif er ég sem einstaklingur að hafa á líf annarrar manneskju? Hef ég góð áhrif eða vond áhrif. Hvernig virkar þetta allt eiginlega, er kannski líf okkar löngu ákveðið? Eða mótumst við af því umhverfi sem við erum í...? Þetta eru spurningar sem við munum held ég aldrei fá góð svör við...

En við þessar spurningar hef ég velt fram annarri spurningu uppí hausnum á mér... Er þetta ástæðan að við trúum Guð föður almáttugann, til þess að fá einhver svör við spurningum sem verður kannski aldrei svarað með fullnægjandi svörum... Að mannveran leiti þá svara hjá einhverju yfirnáttúrulegu sem kannski er til og kannski ekki... Og af hverju trúum við á Guð, Búdda, Alla og alla þessa guði... Ég persónulega er trúleysingi, ég hef nefnilega aldrei getað fundið mér trú sem ég er sáttur við, kannski vegna allra þeirra stríða sem trúin hefur valdið okkur, og gerir enn í dag og mun koma til að gera meðan mannveran er uppi... En svo er líka eitt annað með trú sem gerir hana kannski sérstaka er að hún veitir okkur von og styrk í gegnum erfiða hluti, en svo á móti kemur að stríðin sem trúin er að valda okkur veldur hörmungum og vonleysi. Aftur á móti hjálpar trúin fólki þegar það er veikt, en það er eitt sem ég skil ekki með það er að Guð á að geta læknað fólk. En þá spyr ég kannski sem alger vitleysingur af hverju þá þegar Guð er almáttugur, af hverju deyr þá svona ungt fólk í blóma lífsins, af hverju fer fólk frá okkur sem á allt lífið framundan...?

Er þetta hinn góði og almáttugi Guð, sem á að fylgjast með okkur allan daginn og mun víst vera alls staðar, að verki...? 

Ég tek það fram að ég er ekki að reyna að móðga neinn, ég er bara að segja það sem mér finnst og ef fólk móðgast þá biðst ég fyrirgefingar á því...

En nú er komið nóg af röflinu í mér... Ég ætla að reyna að skrifa eitthvað skemmtilegt... Ég ákvað að vera rosalega sniðugur og ég googlaði nafnið mitt, og þá kom þessi skemmtilegi texti: Alllir strákarnir áttu kærustur nema Stjáni, hann fékk þær í láni...

Smá svona skemmtilegt innskot, en núna fer að líða að næstu helgi, sem ég held að verði bara næs, ég er að fara að taka hana Svölu mína í greiðslu fyrir árshátíðina á föstudaginn, síðan er ég er að fara að vinna held ég sem sagt vinnuhelgin mín niðri á Iðu, þarf eimitt að skoða nákvæmlega hvernær ég er að vinna, síðan er afmælið hjá honum Stjána á laugardaginn sem ég held að verði bara gaman.... Býst alveg við skemmtilegri helgi framundan... Verður gott að geta hrist sig útúr ömurleika hversdagsleikans og gert eitthvað skemmtilegt... Síðan þarf maður að fara að ákveða hvað maður gerir um páskana, hvort að maður fari heim eða verði fyrir sunnan að gera eitthvað skemmtilegt, frekar lítið ákveðið hérna sko... Var að spá í að fara norður á Ak-Extreme mótið sem er að mér minnir fyrstu helgina í Apríl, Tinna og Arne voru að spá í að fara og líka Rut og Sollu og hver veit hvort að Andrea fari líka... Á allt eftir að koma í ljós á næstu vikum...

Ég er samt búinn að vera veikur núna frá því á sunnudaginn, var heima núna á mánudaginn hélt reyndar að ég væri orðinn góður á mánudagskvöldið en hefði betur geta sleppt því, ég er að vonast að ná að jafna mig í nótt, svo að ég komist nú í vinnuna á þriðjudaginn, langar ekki beint að verða veikur þegar ég á að vera að vinna...  En jæja núna er komið nóg af röflinu í mér, like always... Svo að ég ætla að fara að skríða í háttinn...

 

Kristján segir bless alltaf hress...

Smá svona rugl í gangi...

 

Friður!

Stjáni

Borg óttans

04. mars 2007 klukkan 15:13

Ágætu lesendur, hlustendur, húsendur eða hvers kyns endur sem þér eruð!

 

Nú hef ég loksins endurheimt mína frábæru fartölvu úr helju, og get ég því verið það menningarlegur að skrifa hvað á daga mína rennur hér í Reykavíkinni ógurlegu, sem dæmi gæti einn dagur hljómað eitthvað á þessa leið:

Sunnudagurinn 21. Febrúar 2007.

Ég vaknaði, það var ennþá myrkur úti, ég fór á fætur, fékk mér morgunmat, ég fékk mér hafragraut, hafragrauturinn var ekki góður á bragðið, ég ákvað því að fara aftur að sofa. Ég fór að sofa, ég svaf í 1 klukkutíma 23 mínútur og 13 sekúndur, ég ákvað þá að fara að lesa morgunblaðið, það var ekkert skemmtilegt í fréttum. Ég ákvað að fá mér göngutúr, ég fann ekki skóna mína, ég fór ekki í göngutúr, ég horfði á sjónvarpið í 6 klukkutíma 53 mínútur og 20 sekúndur, ég er ekki enn þá búinn að læra að kveikja á sjónvarpinu, ég fór að sofa skömmu eftir þetta enda var ég alveg úrvinda eftir daginn.

Svona gæti dagurinn hljómað en svo er víst ekki... En ef ég mundi vera mjög ýkjugjarn hvernig yrði þetta þá?

Sunnudagurinn 21. Febrúar 2007.

Ég vaknaði alveg skelþunnur eftir alveg allsvakalegt djamm, ég henti gellunum þrettán sem voru með mér um nóttina út, enda ekkert með þær að gera lengur! Ég reyndi að fá mér einhvern morgunmat, en það var ekki alveg að ganga eftir, þannig að ég fékk mér bara kippu að bjór. Ákveð að fara í göngutúr, en mundi þá að ég gleymdi skónum niðri í bæ kvöldið áður, hringja í Clark Kent félaga minn og lét hann koma með þá í einum grænum hvelli, hann off course gerir það. Ég rölti niður á prik og fæ mér alveg feita, sveitta þynnku samloku. Þegar ég er búinn að borða kemur páfinn eitthvað að röfla, að ég eigi þúst eitthvað að fara í vatíkanið og taka við öllu dótinu þar. En ég náttúrulega sagði það sem ég sagði seinast, hey man how about NO, ekki alveg að fatta þetta. Þannig ég er ekki alveg að nenna að vera þarna með hann eitthvað hangandi yfir mér, þannig að ég ákveð að fara að finna mér eitthvað að gera, en það er alltaf jafn lítið að gera í Reykjavík og venjulega, þannig að ég hringdi bara í Jude Law og hann kom í heimsókn til manns náttúrulega, fengum okkur smá kaffi saman, en síðan ákvað ég að fara heim að horfa á O.C. en þá hringir þúst þarna Madonna eitthvað að tala. Ég var nú ekki alveg að nenna að tala við hana meina hello ég var að reyna að fara sofa, þannig ég skellti bara á og fór að sofa.

Smá hérna skemmti lesnig ætla ég rétt að vona. En héðan úr borginni er lítið að frétta, lífið gengur sinn vanagang hérna eins og allt annað. En ég skellti mér á skauta á fimmtudaginn sem var reyndar alveg rosalega gaman, fórum svona með skólanum á öðruvísi dögum (alveg eins og opnir dagar í VMA) Andrea og Andri Már komu og sóttu mig hingað upp í Skólavörðuholtið og við fórum í Egilshöll, þar hittum við Erna og Stebba og líka Eyrúni ásamt fullt af fólki. Það gekk reyndar vel á skautunum, nema kannski eitt, við vorum með svona skauta kennara sem var að kenna okkur hitt og þetta, síðan áttum við að fara aftur á bak, arg ég meina ég rétt svo komst áfram hvað það þá hitt og þið getið kannski ímyndað ykkur að ég var verri heldur en belja á svelli! En síðan fórum ég, Erna og Stebbi í Kringluna, og það er nú ekki sem það skeður hjá mér, enda er ég alger miðbæjarrotta , en í kringlunni hitti ég hana Svölu beibí og við ákváðum að skella okkur í ljós og svona læti, og eftir það fórum við til hennar og fengum okkur rauðvín og osta, rosalega fínt kvöld bara.

En ég er loksins komin með íbúð, eftir langa og mikla leit, held ég að ég hafi fundið bara ágætis íbúð, hún er sem sagt í Grafarholtinu, eiginlega við mörkin hjá Mosó, sem verður bara rosalega fínt, vona ég, ég verð þarna að minnsta kosti í sumar og svo sér maður til hvað maður gerir, ég er í blokk nr. Eitt og Svala er í nr. Þrjú og svo er hún Freyja í nr. Sjö, þessi íbúð er í Kapellustíg, en þar er bara svona nema íbúðir, þannig að það er eiginlega bara ungt fólk þarna, og líka í götunni við hliðina á sem sagt Klausturstíg þar er bara nema íbúðir held ég. En þetta er allt rosalega spennandi. Og geta loksins farið og keypt sér sofa og svona dót verður alveg rosalega gaman. Úff ég held samt að ég þurfi að fara að kaupa mér svona ipod, ég er alveg að verða klikkaður að hafa ekki neitt, mig vantar að hafa einhverja tónlist í eyrunum á daginn. Pabbi ef þú ert að lesa þetta :P En jæja þá held ég að ég fari að taka mér smá pásu að skrifa í bili, en ég get ekki sett þetta á netið alveg strax þar sem ég fékk senda tölvuna suður og netkortið mitt gleymdist heima, ekki alveg það skemmtilegasta.